Það er búin að vera einmunaveðurblíða hér á Höfuðborgarsvæðinu já eða á Suðurlandi í allt sumar. Ég er að fara í frí um helgina og vona svo innilega að blíðan haldi áfram, en það getur varla verið.... er það? Sumarfrí... já þau eru stundum soldið fyrirkvíðanleg, þegar maður er að fara einn í frí, ég kvíði svo sem ekki mínu þetta árið þó það sé alveg óskipulagt... Ætla bara að slappa af og vona að litlu skottunni minni leiðist ekki mikið, reikna með að eyða fríinu að mestu leyti heimavið. Vonandi eru einhverjar fleiri skottur heima sem hægt verður að leika við.
Venjulega hefur allavega eitthvað staðið til, en þetta er alveg óvenjulegt. Verð örugglega svo fullt á ferðinni þegar á reynir eða reikna svo sem með því, allavega kemur mér ekki til að leiðast.
En að vera í vinnunni eins og veðrið er búið að vera er hrein hörmung, ég þjáist orðið af athyglisbresti og einbeitingarskorti á háu stigi, spurning um að fara að taka svona rítalín eins og börnin.... hehehe...
jæja hætti þessu bulli og held áfram að vinna.
miðvikudagur, júlí 21, 2010
föstudagur, apríl 16, 2010
Þar sem sólin skín
Mér barst í hendurnar bók sem heitir "Þar sem sólin skín". Þessi bók er eftir Lizu Marklund sem er sænskur rithöfundur og bara nokkuð góður svona í þessum sakamálasöguflokki allavega. Bókin hefst á því að sænsk fjölskylda er myrt á suður Spáni og blaðamaðurinn Annika fer og kannar málið frekar. Inní atburðarásina flækist svo einkalíf Anniku, erfiðleikar í samskiptum hennar við samstarfsmenn og ekki má svo gleyma hinni flóknu sögu um smygl og fleira sem tengist morðunum á fjölskyldunni.Allavega alveg sæmilegur krimmi og á það jafnvel til að koma manni á óvart á köflum.
fimmtudagur, apríl 15, 2010
Ein soldið fúl og sár.
Æji, eitt svona neikvæðnisblogg. Málið er að vegna gossins í Eyjafjallajökli, sem er nú að gera miklu meira rask en menn höfðu reiknað með, er búið að stoppa alla flugumferð í Evrópu..... spurning hvað það varir lengi, og svo er spurning hvort opið verði heima í Keflavík þó það opnist í Evrópu... mamma og Skottið mitt ætluðu að koma hingað til Bergen í næstu viku og vera hér síðustu dagana sem ég er hér, allir búnir að hlakka mikið til..... en nú þurfum við bara að krossa fingur að vindáttin verði hagstæð, sem ég hef eiginlega ekki hugmynd um hver er eða að gosið hafi róað sig soldið og ekki sé eins mikið öskufall frá því og er núna.... Svo bíða allir núna með öndina í hálsinum yfir nýju flóði í Markarfljóti, sem sagt er að verði mikið stærra en flóðið í gær.... vonandi að allir hafi náð að rýma og enginn sé í hættu....
Síðast en ekki síst er ég með slasað hné nr. 2, þ.e. ég slasaði hálfheila hnéð mitt, þ.e. ekki þetta skorna heldur hitt, haldið ekki að ég hafi farið með vinnunni hér í Bergen í Krullu, og náði að renna þannig að hálfheila hnéð mitt snérist allt í klessu.... ég krossa bara fingur yfir að ekki hafi neitt slitnað púff.... ég snéri nefnilega þetta hné í djúpum snjó á milli jóla og nýárs..... en sleit ekkert skv. lækni .....en nú er ég skíthrædd... hnéð bólgnaði upp og er hrikalega stirt.....
púfff.......

miðvikudagur, apríl 14, 2010
Váá... ég er að missa af öllu!!
Mér finnst soldið fúlt að vera ekki heima á Íslandi þessa dagana. Sakna umræðanna og deilnanna á kaffistofunni, en nú er aldeilis tækifærið til að ræða málin. Skýrslan góða.... Já og svo öll eldgosin, ég er reyndar enn með frekar veikan fót svo ekki komst ég uppá Fimmvörðuháls til að sjá fína "túristaeldgosið" okkar og svo verður gufubólsturinn á Eyjafjallajökli pottþétt búinn þegar ég kem heim aftur.
En skýrsluna hefði ég vilja ræða við einhvern sem kann íslensku.... á reyndar eftir að lesa hana en hef fylgst vel með fréttum. Ég sjálfstæðismaðurinn þarf auðvitað að svara fyrir okkur og okkar stefnu.
Mér finnst reyndar soldið fúlt að allir benda á einhvern annan, enginn kemur fram og segir sorrý, ó jú Bjöggi gerði það víst í Fréttablaðinu, en það hvarf í öllu "gosstússinu". Ég kann að meta það þegar menn segja sorrý, jú ég gerði mistök, jú ég trúði að þetta væri í lagi, jú ég var ekki nógu gagnrýninn í hugsun, jú ég tók lán, jú ég ætlaði mér of mikið, jú ég skal segja af mér.
Reyndar tíðkast það ekki hér á landi að menn segi af sér.... en það má breyta því.
Eini maðurinn sem ég get rætt þetta við er kærastinn minn, en það er í síma yfir netið og sambandið rofnar yfirleitt þegar umræðurnar eru komnar á ákveðið stig... hehehe.... en hann er harður framsóknarmaður og fullyrðir að þeir séu eini flokkurinn sem sé búinn að taka til hjá sér.... jú eitthvað til í því..... En ég vildi gjarnan taka nokkrar rimmur á kaffistofunni og þær jafnvel við aðra sjálfstæðismenn.
Jæja kannski er bara gott að fá aðeins fjarlægð á þetta.... maður verður svo reiður!!!! ARG...

2 ára gullmoli
Yndisleg frænka mín er tveggja ára í dag. Glókollur með stór blá augu og þau dekkstu og lengstu augnahár sem finnast. Hún á örugglega ekki eftir að sjá þetta blogg mitt hérna en ég ætla að nota tækifærið að óska henni til hamingju með afmælið og lýsa yfir leiða mínum á því að geta ekki mætt í veisluna hennar í kvöld.
En þessi gullmoli kom í heiminn fyrir 2 árum síðan og var meira en velkomin. Hún kemur inn í stórar og flóknar fjölskyldur. Hún var barnabarn númer 8 báðum megin ef allir eru taldir með þ.e. skábarnabörn og slíkt með. Hún á 3 hálfsystkin, tvær yndislegar systur sem eru líka frænkur mínar og einn stóran flottan bróðir, svo er hún líka rík af ýmsu öðru, hún á stóran Labrador hund og sérvitra kisu.
Hún er bara flottust, koss og knús.

Bara!
Fékk frábæran póst í dag sem ég er að hugsa um að birta hér, nokkurn veginn óritskoðaðan.... vona að höfundinum sé sama ;)
Allir að fárast yfir kreppu, sukki, iceslave, snekkjum, þjófum og ræningjum.
Svo þegar allir eru búnir að tala í hringi og allir komnir með doða og ógeð þá kemur gos. Allir tala um gosið.
Allir orðnir leiðir á þessu blessaða frussi, nei gosi meina ég.
Gosið hættir þegar skýrslan er gerð opinber.
Allir blaðra sig út um skýrsluna, „þetta var bara kjaftæði“ sagði fólk, „við vissum þetta nú alveg, það þurfti enga skýrslu maður!“. „shit 160% fram úr tímaáætlun og allir með ræpu af spenningi yfir skýrlunni og svo er þetta niðurstaðan.....“ allir hundfúlir yfir skýrslunni....
Þá kemur Bjöggi Thor og segir sorrý maður, ég bara fattaði þetta ekki, sko bara (Orðið bara var mikið notað af útr-víkingum. „Slá bara lán. Endurfjármagnar þetta bara . Hirðir bara draslið maður. tekur bara Kúlu á þetta. Þetta er bara dallur osfrv...)
Þá kemur bara nýtt gos, já og ekki eins og þetta lélega drasl um daginn. Nú er almennilegur gosmökkur, stórflóð og allt almennilegt. Vantar bara gullflögurnar til að toppa þetta.
(var að heyra í aukafréttatíma að þeir búast við miklu tjóni og ekki bara á vegum og brúm... þannig að það er náttlega ekki fyndið sko)
Sem betur fer búið að koma fólki í burtu.
Njótið brosins ;)

þriðjudagur, apríl 13, 2010
Inngangur að Aprílbloggi.
Langt síðan ég bloggaði síðast... en svona er þetta bara tíminn flýgur og ég verð nú að segja það að ég er heldur ekki búin að vera uppá mitt besta.
Ég fór í þessa fyrrnefndu hnéaðgerð í byrjun janúar, nánar tiltekið á afmælisdaginn minn hehehe.... eftir þó nokkra þrautagöngu, verki og slagsmál við bjúg kom í ljós að ég er með blóðtappa frá miðjum kálfa að miðju læri. Þetta hefur kostað ýmislegt t.d. þurfti ég að sprauta mig fyrstu vikurnar og svo tek ég blóðþynnandi töflur sem eiga að forða því að blóðtappinn geri frekari skaða. Þetta hefur nú gengið svona frekar hægt og enn er ég hölt og er vinstri fóturinn á mér mun feitari en sá hægri. En allavega leið mér og líður stundum eins og ég hafi elst um marga tugi ára í þessum veikindum svo ekki sé talað um fleiri tuga þúsunda útgjöld sem eru nú komin vel á annað hundraðið.
En mikið ofsalega lærir maður að meta góða heilsu þegar maður verður fyrir svona áfalli, vona að það skili sér í meiri hreyfingu og hollara matarræði svona þegar ég næ að koma mér uppúr volæðinu......
Nú er ég stödd í Bergen á ný, það er mun bjartara hér núna en var í haust og sólin hefur líka látið sjá sig þó enn sé skítkalt. Hér ákvað ég að lifa soldið svona "bohem" lífi, þ.e. ganga og taka strætó allar mínar ferðir. Þetta kallar á þó nokkuð labb og vill brekkan hér á leiðinni heim stundum vera ótrúlega löng og brött og reynir þó nokkuð á fótinn, en ég vona að ég hafi gott af þessu.
Ég hef nú loksins tíma til að lesa eitthvað og var ég byrjuð á bókinni "Sex grunaðir" sem er eftir sama höfund og "Viltu vinna miljarð". Reyndar er sú bók í venjulegu bindi svo ég skildi hana eftir heima hálflesna vegna þyngdar. Í staðin tók ég með mér bækurnar "Póstkortamorðin" og "Berlínaraspirnar". Ég lofa ykkur bókarýni á næstu dögum.

fimmtudagur, febrúar 18, 2010
Svörtuloft
Ætla að halda áfram hér með bókarýnina, eða þannig, þetta er nú kannski meira svona listi og upprifjun fyrir mér hvaða bækur ég hef verið að lesa. Ég fékk Svörtuloft hans Arnaldar Indriðasonar í jólagjöf og húrra.... Nú held ég að ég sé örugglega búin að lesa allar bækurnar hans Arnaldar og mér fannst þessi best. Jú stórt sagt og allt það, en hún hélt mér í spennu þar til yfrlauk og það tók ekki langan tíma. Hún er fyndin og margar smellnar lýsingar í henni.
Þarna blandast saman eiginlega 3 mismunandi ótengd mál. Morgunblaðsstuldurinn mikli, saga ógæfumannsins og sagan um fjárkúgunina og morðið.
Allavega ef ég væri með stjörnukerfi frá 1-5 fengi þessi allavega 4,5.
miðvikudagur, febrúar 17, 2010
Horfðu á mig
Ég fékk bókina "Horfðu á mig" eftir Yrsu Sigurðardóttur í jólagjöf. Ég hef áður aðeins lesið eina bók eftir Yrsu og hét sú "Þriðja táknið", ég veit það ekki ég var ekkert voðalega hrifin af henni, en þessi bók þ.e. þessi nýja er allt öðru vísi og miklu, miklu betri. Allavega náði hún mér alveg og mér finnst Yrsu ganga snilldarlega að segja eiginlega tvær sögur í einni og ná að flétta þeim svo saman í restina. Hún greip mig allavega og las ég hana í einum grænum. Mæli með henni við fólk sem hefur áhuga á glæpasögum sem gerast í nútímanum. Þarna er Þóra að rannsaka mál sem gerist á sambýli fyrir fatlaða og um leið fléttar hún saman við þá sögu draugasögu úr Mosó... Allavega góð útkoma, til hamingju Yrsa.þriðjudagur, febrúar 16, 2010
Out Stealing Horses
Ég ætla að reyna að halda áfram með bókagagnrýnina mína hérna og fjalla aðeins um jólabækurnar og þær bækur sem ég hef lesið undanfarnar vikur. Fyrsta las ég "Out stealing horses" sem er eftir norskan höfund, Per Petterson, ég keypti hana reyndar á meðan ég var úti í Bergen en kaldhæðni örlaganna olli því að ég keypti hana á ensku en ekki norsku. Þessi bók er soldið langdregin og þung, þó ekki sé hún löng eða þykk. Hún náði mér allavega ekki alveg þó hún væri afskaplega falleg og náttúrulýsingarnar góðar í henni. Kannski er ég bara orðin svona spennufíkill og það gengur ekkert fyrir mig að lesa einhverjar svona hámenningarlegar bókmenntir hmmm.... Þetta er margverðlaunuð bók og að mörgu leyti mjög svona djúp þegar maður pælir í því. Hvað fær mann, sem er vanur öllum þægindum nútímalífs, til að flytja útí skóg og búa einn langt frá öllum og öllu, þar sem hann þarf að hafa áhyggjur af því að hafa eldivið og hvernig hann eigi að geta hreyft bílinn ef snjóar..... smátt og smátt kemst maður að hverju maður er að leita, hann er að leita að rónni og friðinum og einsemdinni, en er í raun ekki einmanna....mánudagur, febrúar 15, 2010
Febrúarblogg
Æji, ég er ekki nógu dugleg í þessu bloggi. Skrítið hvað þarf lítið til að slá mann útaf laginu. Ég sem á erfitt með að slappa af og er oftast á fullri ferð er bara búin að vera í "slow motion" þetta árið. Byrjaði árið á því að fara í hnékrossbandaaðgerð á afmælisdaginn minn semsagt fyrst í janúar og er bara búin að vera í mínus síðan. Fór ekkert í vinnu í tæpar tvær vikur og hóf svo vinnu á hálfum dampi, og ég meina það hvert fór þrekið mitt og orkan... bara púff.... sé að ég þarf greinilega að fara að vinna markvisst að því að bæta mig fyrir sumarið, en samt er það takmörkunum háð, þar sem ég má ekki vera fullri ferð strax.... Jæja, ekkert svona grát og volæði, þetta er bara á uppleið núna, sólin fer að hækka á lofti og lífið blasir við mér.....
laugardagur, janúar 16, 2010
Gullkorn
Stundum falla gullkorn hér sem verður að skrá, kannski það sé ágætt að gera það hér. Sú stutta hafði á orði í gærkveldi er hún horfði á líkamsræktarkallana Ívar Guðmundsson og Arnar Grant, hvað þeir væru svakalega massaðir... (sko hún er sex ára) svo bætti hún við.... þegar ég verð stór ætla ég að giftast mössuðum manni....
Ok þar höfum við það...
Ok þar höfum við það...
föstudagur, desember 11, 2009
Brennu-Njálssaga
Ég á son sem er í menntaskóla, honum finnst ekkert sérstaklega gaman að lesa og sérstaklega ekki skólabækurnar, það sem bjargar honum í sinni góðu skólagöngu er að hann á mjög auðvelt með að læra hluti sem hann heyrir og er ágætlega klár. Allavega gengur honum mjög vel í skólanum þó ég sjái hann mjög sjaldan lesa skólabækur. Í vikunni var próf í Brennu-Njálssögu og minn maður auðvitað ekkert búinn að lesa þá bók frekar en aðrar, en hann var nú ekki að baki dottinn og fór á bókasafnið og náði sér í teiknimyndasögur sem gefnar hafa verið út á undanförnum árum og segja sögur úr Brennu-Njálssögu, þær heita Blóðregn, Brennan, Hetjan og Vetrarvíg. Ég kíkti nú í þessar bækur og svei mér þá ef ég þarf ekki að fara að lesa og rifja upp þessa stórmerku sögu.fimmtudagur, desember 10, 2009
Áður en ég dey.
Jæja, þá er ég búin að lesa bækurnar um dauðann hmmm.... Bókin "Áður en ég dey" fjallar um 16 ára gamla stúlku sem er með krabbamein og veit að hún á aðeins örfáa mánuði eftir. Hún er aðeins 16 ára og auðvitað full af uppreisn gagnvart foreldrum sínum og umhverfi, svona týpískur 16 ára unglingur auk þess sem hún þarf að bera þann þunga bagga að vera dauðvona. Það eru ýmsar uppákomur sem sagt er frá í bókinni og það sem er skemmtilegt er að stúlkan gerir lista yfir allt það sem hún vill gera áður en hún deyr og á þeim lista eru m.a. kynlíf, dóp, frægð, ást, segja já við öllu í heilan dag, fremja glæp osfrv. Þessi bók er í senn átakanleg og skemmtileg, hún ýtir við manni, fær mann til að hugsa um hvað lífið er í raun dýrmætt og hve mikilvægt það er að njóta hvers augnabliks þess. Hún kennir manni einnig sitthvað um ástina og það sem skiptir máli í lífinu.
fimmtudagur, nóvember 19, 2009
Veronika ákveður að deyja!!
Ég kláraði í strætó, á leiðinni heim, í dag alveg stórkostlega bók að mínu mati. Bókin heitir "Veronika decides to die" og ég er búin að eiga hana uppí hillu í mörg ár, en einhvern veginn ekki verið í "stuði". Höfundur bókarinnar er brasilíski rithöfundurinn Paulo Coelho sem meðal annars er höfundur bókanna "Alkemistinn" og "Ellefu mínútur", sem eru líka mjög góðar.
En bókin fjallar um hana Veroniku sem er ung, falleg, í góðri vinnu, hún á umhyggjusama fjölskyldu og hefur eiginleg allt sem ung kona getur óskað sér, en henni finnst lífið tilgangslaust og gerir tilraun til að fremja sjálfsmorð með að taka inn svefntöflur. Tilraunin mistekst og hún vaknar á geðsjúkrahúsi þar sem henni er sagt að töflurnar hafi haft svo slæm áhrif á hjarta hennar að hún geti ekki reiknað með að lifa nema í mesta lagi viku í viðbót. Hún er svo sem alveg sátt við það í upphafi, en smátt og smátt lærir hún að kunna að meta lífið. Það sem mér fannst stórkostlegt í þessari bók eru pælingarnar um geðveiki, hver er geðveikur? og hver ekki? eru allir sem ekki eru alveg eins og hinir geðveikir? Innan hælisins leyfist fólkinu að gera alls konar hluti og það getur alltaf afsakað þig með því að það sé nú geðveikt, einnig er þarna inni fólk sem er alveg heilbrigt en líkar svo vel við það að vera inni í vernduðu umhverfi hælisins þar sem það getur verið það sjálft einnig er þarna fólk sem er löngu orðið heilbrigt en er hrætt við að horfast í augu við harðan heiminn utan veggja hælisins .... Já, en afhverju erum við ekki öll soldið "geðveik" í okkar daglega lifi? við þurfum ekkert að vera öll eins, við þurfum ekkert að vera öll eins eð með sömu skoðanir, í raun högum við okkur svolítið eftir óskrifuðum reglum og í takt hmmm....
Ég er bara að spá í að verða soldið geðveik í framtíðinni.......

sunnudagur, nóvember 15, 2009
Loftkastalinn sem var sprengdur!
Já ég var nefnilega að lesa bók, þriðju bókina í svokölluðum Millenium bókaflokki eftir Stig Larsson. En ég las hana á dönsku og heitir hún þar "Luftkastellet der blev sprængt" ég hef ekki hugmynd um hvað hún kemur tilmeð að heita á íslensku. En þessar bækur hafa algjörlega tekið mig með trompi og ég varð eiginlega hálfsár þegar ég kláraði síðustu bókina og óskaði þess eiginlega að ég ætti eftir að lesa þessar bækur hehehe...
Það sem ég hef áhyggjur af núna er að ég á bara tvær bækur eftir af þeim bókum sem ég kom með hingað út, og þær heita "Veronica decides to die" og "Áður en ég dey"... hmmm... mætti halda að dauðinn væri mér eitthvað ofarlega í huga, en svo er nú alls ekki bara soldið fyndið, því sérstaklega bókin um Veronicu er bók sem var mælt með við mig fyrir mörgum árum síðan og ég er búin að eiga hana uppí hillu þó nokkuð lengi en svona er þetta bara.....
laugardagur, nóvember 14, 2009
Myndarlegir Norðmenn
Það er eitt sem ég tek eftir hér í Noregi, en það eru karlmennirnir hmmm... Mikið afskaplega eru margir myndarlegir karlmenn hér;) Norðmenn leggja mikið uppúr hreyfingu og heilsu og það sést alveg, þeir eru kannski ekki mikið að elta einhverja tískustrauma en samt, þeir eru í sporttískunni og þeir klæðast merkjavöru þegar kemur að íþróttafatnaði. Já en strákarnir hérna eru alveg gullfallegir og ef ég væri tuttugu árum yngri yrði ég ásfangin á hverjum degi sko bara á leiðina í vinnuna. Karlmenn á miðjum aldri halda sér lika bara helv. vel finnst mér allavega þeir sem ég sé í sjónvarpinu og í séð og heyrt hehehe... en sama má svo sem segja í vinnunni alveg fullt af þeim. Ég ætla ekki að dæma um það hvort karlar séu eitthvað fallegri hér en heima, kannski er ég bara með augun betur opin hér og svo er maður alltaf að sjá nýja menn, heima hefur maður séð þessa menn svo oft áður að maður er kannski bara hættur að taka eftir þeim hehehe...mánudagur, nóvember 09, 2009
Strætó!
Hérna heima á Íslandi er maður löngu hættur að nota strætó, en hér í Bergen er þetta eina farartækið sem ég hef aðgang að ;)
Venjulega fer ég á sama tíma í vinnuna á morgnana og tek sama strætó og þar má sjá ýmsa kynlega kvisti, eins og heima á Íslandi eru það aðallega unglingar og útlendingar sem nota strætó hér auk nokkurra svona "venjulegra" kvenna og karla sem líta á þetta sem sparnað í stað þess að fá sér bíl númer tvö.
En á þessum sama tíma og ég fara í strætó, eldri kona með hækju, stúlkan frá austurevrópu einhvers staðar sem alltaf talar í símann, á hverjum einasta morgni kemur hún hlaupandi í strætóskýlið með símann á eyranu, hún talar í símann á meðan hún bíður eftir strætó, talar í símann alla leið að umferðarmiðstöðinni þar sem við skiptum um vagn og svo fer hún úr strætó nokkru á undan mér og enn er hún í símanum talandi eitthvað óskiljanlegt tungumál.
Svo er þarna huggulegi ungi sköllótti maðurinn, maðurinn í frakkanum með stresstöskuna, ungi strákurinn í vinnugallanum og unga konan sem sennilega er kennari við Söreide skóla og miðaldra huggulega konan í fínu kápunni hehehe... já já, svo eru það krakkarnir sem eru á leið í skólann, held að þau séu á leið í einhvern menntaskóla, sem ég veit ekki alveg hvar er staðsettur.
Í morgun var ég þreytt, enda ekkert skrítið, gærdagurinn fór í flugferðir og bið, ég var ekki komin hér inn fyrr en seint og ákvað að sofa aðeins lengur og taka strætóinn aðeins seinna í vinnuna, jú jú það gekk eftir, þegar ég kom á umferðarmiðstöðina var nægur tími ja sem betur fer ef allt hefði verið eðlilegt því snillunum á umferðarmiðstöðinni hafði dottið í hug að rugla öllum staðsetningum og fólk var þarna hlaupandi á milli palla að leita að sínum vagni hehehe... en jú jú ég var á réttum palli en mig grunar að strætóbílstjórinn hafi ekki fundið þann rétta því enginn kom vagninn og við vorum nokkur sem biðum og biðum og biðum og biðum ooog biðum og .... já já það kom enginn vang fyrr en sá næsti átti að koma alveg hálftíma seinna púff.... jæja en svona er þetta sem betur fer lá mér ekkert á í vinnuna og gat unnið aðeins lengur til að vinna upp daginn hehehehe....

þriðjudagur, október 06, 2009
Vikustopp :)
Jæja, þá kom að því að maður fór í vikustopp heim til Íslands. Stundum er maður búinn að ímynda sér hlutina kannski öðru vísi en þeir raunverulega eru og það er enginn lygi að fjarlægðin geri fjöllin blá hehehe....
Nú kom ég heim seint á föstudagskvöldi ja eða eiginlega laugardagsnótt og enginn heima, stelpurnar báðar hjá pabba sínum og sonurinn á djamminu, þannig að það var aðeins hundurinn sem fagnaði mér heima... já og þvotturinn.... hehehe.... ekki nóg með það heldur er uppþvottavélin mín að klikka alvarlega, ég fékk nú mann um daginn sem ekki fann neitt að henni og greiddi ég honum rúmlega 13000 kall fyrir en hún er bara ekkert í lagi sko....
Svo kom laugardagur og hann var nú bara yndislegur, Skottan kom til mín bara fyrir klukkan 10 og knúsaði mömmu sína þvílíkt í rot hehehehe... gaman að því, svo kom nú Menntaskólastelpan og knúsaði mömmu sína líka og sama gerði nú sonurinn þegar hann vaknaði seint og um síðir hehehe....
Ég var auðvitað búin að ímynda mér stóran svona fjölskyldukvöldverð með góðum mat og einhverju spjalli, á laugardagskveldinu, en nei, nei, Menntskælingarnir mínir voru nú með önnur plön og jú við borðuðum saman en það var gert svona í einum grænum því einn átti að vera hér og annar þar ... já svona er þetta þegar börnin manns fara að lifa sjálfstæðu lífi... Já ef ég hefði nú ekki Skottuna mína þá ....

sunnudagur, september 27, 2009
Helgar í Bergen
Hér í Bergen hefur rignt næstum látlaust í rúma viku. Auðvitað er ég búin að fjárfesta í regnhlíf, enda þýðir ekkert annað, jafnvel þó að maður sé í góðum regnjakka þá nær maður einvhern veginn að verða blautur.
Vinnuvikan gekk bara nokkuð vel fyrir sig, bara leið ótrúlega hratt og nú eru bara 5 dagar þar til ég kem heim, ja eða 4 eftir því hvernig maður telur hehehe....
Fór í bíó á föstudag og sá myndina "Inglorious Basterds", þar sem hinn ofurkynþokkafulli Brad Pitt fer á kostum með Tenessee hreiminn, alveg stórkostlegur, sérstaklega þegar hann talaði ítölsku hehehe.... Það var búið að mæla mikið með þessari mynd við mig og var það algjörlega verðskuldað, en ég bjóst ekki við svona grófu ofbeldi en áttaði mig auðvitað um leið þegar ég sá að Quentin Tarantino væri leikstjórinn, enda hefur hann leikstýrt myndum eins og Kill Bill vol 1 og 2, Pulp Fiction og Reservoir Dog, sem eru nú ekkert sunnudagaskóla efni. En allavega skemmti ég mér stórvel á þessari mynd og get mælt með henni við hvern sem er sem þolir smá blóð og ógeðslegheit hehehe....
Gærdagurinn fór nú frekar í rólegheit, flæktist um á netinu, reyndi að vinna smá, verslaði og fór svo til frænku minnar í mat, dagurinn í dag var enn rólegri, ekki var hægt að flækjast á netinu vegna mjög svo óstabíls sambands hérna í húsinu, heyrði reyndar í stelpunum mínum á milli þess sem netið datt út, þreif svo íbúðina.. alla 37 fermetrana og las, er langt komin með bókina um stúlkuna sem lék sér að eldinum (á norsku auðvitað) auk þess sem ég veiti mér þann lúxus að kaupa hér tímaritið "Se og Hör" sem er auðvitað nauðsynlegt sjónvarpsdagskráinnar vegna og svo er auðvitað skylda að kaupa slík blöð til að komast inn í það hverjir skipta máli í norsku samfélagi hehehe... og vera auðvitað viðræðuhæfur í hádeginu hmmm.....

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)