miðvikudagur, maí 26, 2004

Sól og blíða

Jæja, skyldi sumarið vera komið. Var að fá email frá einni af bestu vinkonum mínum (svona til að móðga engann), en hún býr í AMERÍKU. Hún segist gera hlaupið 5 km, og ætlar að hlaupa 10 km í haust. Ég horfi á mín 20-25 kg sem ég er með svona extra og hugsa að ég gæti ekki einu sinni hlaupið út götuna heima hjá mér:(. Þarf að fara að gera eitthvað í þessu! Jæja þýðir ekki að sökkva sér niður í þunglyndi yfir þessu. En svona er þetta bara. Tek á þessu seinna.

Ekki standa ef þú getur setið, ekki sitja ef þú getur legið og ekki gera neitt í dag sem má bíða til morguns. (kínverskur málsháttur, hann er örugglega eitthvað lagaður til þessi)

bæ bæ dagbók

Engin ummæli: