fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Flutningar

Jæja, nú er allt á fullu að flytja "familiuna" þ.e. mig og börnin, kallinn fer annað. Reyndar er tengdapabbi aðal kallinn í flutningunum, hann stjórnar þessu harðri hendi og hann getur eiginlega bara unnið með kallinum mínum fyrrverandi svo þetta þýðir það að þeir sjá eiginlega um þetta. Bræðrum mínum og föður finnst þetta svolítið asnalegt að þeir séu þarna með tögl og haldir en svona er þetta bara og mér líður svo sem ekkert illa með þetta, finnst þetta bara fínt. Það er spurning hvað maður gerir næst þegar maður flytur, kannski hringir maður bara í fyrrverandi!!

Engin ummæli: