þriðjudagur, janúar 30, 2007

Spákonur

Ég var víst búin að lofa ykkur að láta vita þegar ég væri búin að hitta spákonu. En núna er það ekki bara ein heldur tvær. Já, já, ég fékk nafn hjá einni og hringdi, fékk bara tíma daginn eftir ekki málið. Það var gaman að koma til hennar og hún sagði ýmislegt sem ég ætla nú ekki að fara nánar útí hér. En 2 vikum seinna hringdi þessi sem ég sagði ykkur frá, þessi með bréfið OK ég sló til.

Þær voru nú ekki alveg sammála um allt en ótrúlega margt. Þær lýstu mér og mínu lífi afskaplega rétt og lýstu börnunum mínum líka.

En allavega mér var sagt að árið 2007 yrði svo mörgum sinnum betra en árið 2006 svo nú er bara að trúa því.

....ég sé blátt hjól.....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alveg get ég trúað þessu, að árið 2007 verði gott. þú ert búin að leggja grunnin, með því að ákveða að verða frjáls (og leggja manninum)
gangi þér áfram vel.
Edda V.

ofurmamma sagði...

Takk fyrir upppeppið Edda V.