mánudagur, mars 16, 2009

Afmæli

Enn á ný er komin "afmælisvertíð" hjá mér, tvö af börnum mínum eru "Fiskar" þ.e. í stjörnumerkinu fiskar.

Í gær hélt ég uppá afmæli þeirra fyrir fjölskylduna, hef gert það undanfarin ár, algjör óþarfi að baka margar perutertur og fá fjölskylduna hér í kaffi með tveggja vikna millibili hehehe.....

Á morgun er svo "leikskólaafmæli", þ.e. "blöðruhópurinn" kemur ásamt nokkrum aukadömum og verður þetta mikið fjör þ.e. þegar 10 leikskólakrakkar koma saman svona eftir leikskóla.

Jæja en allavega verður hér í boði pizzur og hundakökur á morgun.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með skottuna þína - 6 ára á morgun ;0) stór dagur í lífi dömunnar. Kv. Maddamamma